Leyfismál, gæðahandbók, innra eftirlit og stofnun fyrirtækja

Staða
Ekki skráð(ur)
Verð
9900

Þess er krafist, að hálfu hins opinbera, að áður en hafist er handa við sölu eða dreifingu  matvæla, skuli þar til bær yfirvöld veita til þess leyfi. Grunnur að leyfisveitingu er að:

  • framleiða örugg matvæli
  • neytendum stafi ekki hætta af neyslu þeirra
  • með skýrum hætti komi fram hver sé ábyrgur fyrir framleiðslunni
  • það komi fram hvað eigi að framleiða, úr hverju, hvar og hvernig
  • það liggi fyrir staðfesting, að allt hafi verið gert, sem tryggir öryggi matvæla

Smáframleiðsla matvæla hér á landi er þó nokkur og mun líklega fara vaxandi á næstu árum. Leyfisveitendur og eftirlitsaðilar krefjast þess í mun ríkari mæli að framleiðendur hafi faglega þekkingu og reynslu til að geta framleitt öruggar og góðar vörur. Með þessu leiðbeiningum, er þeim sem ætla að hefja smáframleiðslu matvæla, gert kleift að sækja sér þekkingu sem nýtist við umsókn um starfsleyfi, innra eftirlit og gerð gæðahandbókar.

Smáframleiðsla matvæla – um fræðslusefnið á netinu​

Matís og starfsmenn þess eru bakhjarlar þessa verkefnis. Fræðsluefnið er unnið úr ýmsum gögnum s.s. þeim lögum og reglugerðum sem fjalla um matvæli, úr fyrri rannsóknum og því náms- og kynningarefni sem útbúið hefur verið hjá Matís og Matvælastofnun.