Boðið er upp á hagnýt vefnámskeið fyrir smáframleiðendur matvæla.
Viðurkenningarskjal
Nemendur fá sérstakt viðurkenningarskal að loknu hverju námskeiði.
Vandað námsefni
Námskeiðin eru sett saman af sérfræðingum Matís ohf.
Námskeiðin okkar
Hér má sjá framboð vefnámskeiða Matís.
9900 ISK með VSK
Leyfismál, gæðahandbók, innra eftirlit og stofnun fyrirtækja
Með þessu námskeiði, er þeim sem ætla að hefja smáframleiðslu matvæla, gert kleift að sækja sér þekkingu sem nýtist við umsókn um starfsleyfi, innra eftirlit og gerð gæðahandbókar.
Matvæli mega ekki valda neytendum skaða. Það er grundvallaratriði. Öll vinnsla matvæla og innra eftirlit og opinbert eftirlit gengur út á að tryggja öryggi matvæla.
Matarsalt gegnir margvíslegu hlutverki í matvælum. Fyrir utan að hafa sérstakt bragð hefur það ýmsan tæknilegan tilgang sem skiptir oft meginmáli fyrir lokaafurðina.
Þótt megintilgangur með umbúðum sé að verja vörur mengun og skemmdum þá felst mikilvægt viðbótarmarkmið í því að koma upplýsingum til kaupenda og dreifingaraðila og að gera vöruna aðlaðandi.
Unnar kjötvörur, er samheiti yfir þær kjötvörur sem hafa fengið meðhöndlun sem oftast stuðla að lengra geymsluþoli með verkun eða setja vöru í neysluhæft ástand með suðu.
Til eru mismunandi skiptingar á heilum skrokk í einstaka parta, það er kaupandinn og sá markaður sem verið er að vinna inn á, sem í raun ákveður hvernig slík skipting er.